VIKINGASTEFNA

SJÁLFSVELDI VIKINGA

Grunnstefna Vikingaflokksins er sjálfsveldi Vikinga þar sem hver og einn hefur allt sem þarf til að lifa og dafna. Kerfi skattheimtu með valdi (ofbeldi) er glæpsamleg og þarf að stöðva eins fljótt og auðið er og í staðinn komi lausnir þar sem Vikingar fá verðmæti auðlinda beint til sín a.m.k. árlega og þurfa því á engann hátt að betla af valdstjórninni. Hér að neðan eru helstu stefnumál Vikingaflokksins tekin fyrir en eiga eflaust eftir að breytast og bætast við fleiri þegar fjölgar í Vikingaflokknum. Umræður um stefnumál munu fara fram á Vikingaspjallinu  og Youtube.

Að innheimta skatta með valdi (ofbeldi) er glæpur

Að innheimta skatta, toll og gjöld með valdi (ofbeldi) er glæpur og sennilega elsta vandamál almennings. Saga árþúsundanna hefur sannað að þessi aðferð spillist alltaf og bitnar verst á þeim sem neyddir eru til að greiða skattana en hentar þeim sem eru af kóngakyni eða hluti af elítunni.
Lesa meira

Fjármálakerfið

Við lifum núna við fjármálakerfi sem var stofnað á Jekyll Island árið 1913 af stærstu bankamönnum (fjölskyldum) heimsins (sjá myndband). Kerfið leyfir þessum aðilum að prenta peninga að vild, leggja á vexti og skapa þannig verðmæti úr engu. Til að viðhalda þessu heimskerfi þarf mikið ofbeldi og því lifum við á tímum endalausra stríða og áróðurs sem aldrei munu taka enda nema Vikingar taki stöðu sína og átti sig á því hvernig raunveruleikinn er settur saman.
Lesa meira

Húsnæðismál

Allir Vikingar þurfa heimili og næði. Vikingaflokkurinn telur að þeir sem ekki eiga sér samastað geta numið land og byggt sér bústað án afskipta annara þar með talið Valdstjórnina.
Lesa meira

Sjávarútvegsmál

Vikingaflokkurinn styður ábyrga nýtingu sjávarauðlinda og tekur fullt tilit til náttúrunnar. Það hefur gengið ágætlega að ákveða magn fyrirfram og fylgja þekkingu þeirra sem best vita en þar eru sjómenn þar fremstir meðal jafningja.
Lesa meira

Orkumál

Vikingaflokkurinn vill deila orku landsins á milli Vikinga með sama hætti og lýst er með sjávarauðlindir. Allir einstaklingar fá sinn hlut af orkunni og geta ráðstafað þeim hlut að vild.
Lesa meira

Kletturinn (áður nefnt Stjórnarskrá)

Vikingaflokkurinn leggur til að Kletturinn verði grunnur Íslendinga og allar gerðir af dönskum Stórnarskrám verði lagðar niður með öllu. Mikilvægt er að vikingar reyni að gleyma hefðum og áhrifum sem sú skelfing hefur valdið og reyni frekar að lesa Klettin og skilja að allir eru sjálfsvalda frá getnaði (Zygote). Hér að neðan má finna núgildandi […]
Lesa meira
Scroll to Top